Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 1044, 146. löggjafarþing 413. mál: landhelgi, efnahagslögsaga og landgrunn (grunnlínupunktar og aðlægt belti).
Lög nr. 58 14. júní 2017.
Landhelgi Íslands skal afmörkuð af línu sem alls staðar er 12 sjómílur frá grunnlínu sem dregin er milli eftirtalinna staða:
Landhelgin skal auk þess afmörkuð af línu sem alls staðar er 12 sjómílur frá stórstraumsfjöruborði Kolbeinseyjar (67°08'59,57"N, 18°40'58,70"V), Hvalbaks (64°35'45,42"N, 13°16'37,71"V) og ystu annesjum og skerjum Grímseyjar (66°34'03,27"N, 18°01'18,74"V; 66°33'33,72"N, 18°00'03,65"V; 66°32'45,09"N, 17°58'38,74"V; 66°32'00,88"N, 17°58'40,37"V; 66°31'29,42"N, 17°58'45,61"V; 66°31'36,26"N, 17°59'24,84"V; 66°31'40,69"N, 17°59'43,81"V; 66°32'15,60"N, 18°01'17,25"V; 66°32'21,61"N, 18°01'22,93"V; 66°32'33,57"N, 18°01'34,45"V; 66°33'04,77"N, 18°01'48,60"V; 66°34'01,34"N, 18°01'28,13"V).
Hver sjómíla reiknast 1.852 metrar.
a. (2. gr. a.)
Aðlægt belti er svæði utan landhelgi sem afmarkast af línu sem alls staðar er 24 sjómílur frá grunnlínum landhelginnar.
b. (2. gr. b.)
Innan aðlægs beltis hafa íslensk stjórnvöld heimild til að beita nauðsynlegu valdi til að:
c. (2. gr. c.)
Brottnám muna sem eru fornleifafræðilegs og sögulegs eðlis af hafsbotni innan aðlæga beltisins án heimildar íslenskra stjórnvalda telst vera brot á lögum og reglum sem um slíkt gilda á Íslandi.
Þingskjal 1044, 146. löggjafarþing 413. mál: landhelgi, efnahagslögsaga og landgrunn (grunnlínupunktar og aðlægt belti).
Lög nr. 58 14. júní 2017.
Lög um breytingu á lögum um landhelgi, efnahagslögsögu og landgrunn, nr. 41/1979 (grunnlínupunktar og aðlægt belti).
1. gr.
1. gr. laganna orðast svo:Landhelgi Íslands skal afmörkuð af línu sem alls staðar er 12 sjómílur frá grunnlínu sem dregin er milli eftirtalinna staða:
1. | 66°27'18,73"N | 22°24'10,19"V | Horn I |
2. | 66°08'04,64"N | 20°10'48,81"V | Ásbúðarrif |
3. | 66°12'04,58"N | 18°51'30,00"V | Siglunes |
4. | 66°10'20,57"N | 17°51'14,76"V | Flatey |
5. | 66°17'59,33"N | 17°07'02,92"V | Lágey |
6. | 66°30'37,67"N | 16°32'38,58"V | Rauðinúpur |
7. | 66°32'26,03"N | 16°11'47,30"V | Rifstangi |
8. | 66°32'16,91"N | 16°01'52,45"V | Hraunhafnartangi I |
9. | 66°32'15,98"N | 16°01'31,32"V | Hraunhafnartangi II |
10. | 66°32'14,74"N | 16°01'18,66"V | Hraunhafnartangi III |
11. | 66°22'42,72"N | 14°31'47,69"V | Langanes |
12. | 65°30'39,80"N | 13°36'16,23"V | Glettinganes |
13. | 65°09'58,45"N | 13°30'37,83"V | Norðfjarðarhorn |
14. | 65°04'37,50"N | 13°29'34,21"V | Gerpir |
15. | 64°58'54,90"N | 13°30'46,40"V | Hólmur |
16. | 64°57'41,21"N | 13°31'33,17"V | Setusker |
17. | 64°54'04,80"N | 13°36'51,98"V | Þursasker |
18. | 64°35'06,16"N | 14°01'35,92"V | Ystiboði |
19. | 64°32'45,47"N | 14°06'56,14"V | Selsker |
20. | 64°23'45,67"N | 14°27'32,81"V | Hvítingar |
21. | 64°14'08,11"N | 14°58'22,20"V | Stokksnes I |
22. | 64°14'23,41"N | 14°57'37,98"V | Stokksnes II |
23. | 64°01'39,04"N | 15°58'37,16"V | Hrollaugseyjar |
24. | 63°55'45,18"N | 16°11'00,17"V | Tvísker |
25. | 63°47'50,65"N | 16°38'22,59"V | Ingólfshöfði |
26. | 63°43'31,09"N | 17°37'32,76"V | Hvalsíki |
27. | 63°30'24,19"N | 18°00'01,69"V | Meðallandssandur I |
28. | 63°32'23,47"N | 17°55'14,65"V | Meðallandssandur II |
29. | 63°27'43,73"N | 18°09'09,22"V | Mýrnatangi |
30. | 63°23'36,05"N | 18°44'10,16"V | Kötlutangi |
31. | 63°23'32,72"N | 19°07'26,23"V | Lundadrangur |
32. | 63°17'44,80"N | 20°36'16,61"V | Surtsey |
33. | 63°43'48,66"N | 22°59'18,71"V | Eldeyjardrangur |
34. | 63°40'40,03"N | 23°17'05,86"V | Geirfugladrangur |
35. | 64°51'16,81"N | 24°02'19,59"V | Skálasnagi |
36. | 65°30'07,00"N | 24°32'12,73"V | Bjargtangar I |
37. | 65°30'17,56"N | 24°32'07,35"V | Bjargtangar II |
38. | 65°48'23,52"N | 24°06'07,72"V | Kópanes |
39. | 66°03'39,84"N | 23°47'33,50"V | Barði I |
40. | 66°04'11,01"N | 23°46'41,61"V | Barði II |
41. | 66°25'48,44"N | 23°08'21,56"V | Straumnes I |
42. | 66°25'54,17"N | 23°08'10,87"V | Straumnes II |
43. | 66°25'59,11"N | 23°07'52,08"V | Straumnes III |
44. | 66°26'11,36"N | 23°06'47,40"V | Straumnes IV |
45. | 66°28'00,48"N | 22°57'13,86"V | Kögur I |
46. | 66°28'11,57"N | 22°56'12,07"V | Kögur II |
47. | 66°27'55,63"N | 22°28'21,71"V | Horn II |
Hver sjómíla reiknast 1.852 metrar.
2. gr.
Á eftir I. kafla laganna kemur nýr kafli, I.A, Aðlægt belti, með þremur nýjum greinum, 2. gr. a, 2. gr. b og 2. gr. c, svohljóðandi:a. (2. gr. a.)
Aðlægt belti er svæði utan landhelgi sem afmarkast af línu sem alls staðar er 24 sjómílur frá grunnlínum landhelginnar.
b. (2. gr. b.)
Innan aðlægs beltis hafa íslensk stjórnvöld heimild til að beita nauðsynlegu valdi til að:
- afstýra brotum á lögum og reglum í tolla-, fjár-, innflytjenda- eða heilbrigðismálum á landi eða innan landhelginnar,
- refsa fyrir brot á framangreindum lögum og reglum sem framin eru á landi eða innan landhelginnar.
c. (2. gr. c.)
Brottnám muna sem eru fornleifafræðilegs og sögulegs eðlis af hafsbotni innan aðlæga beltisins án heimildar íslenskra stjórnvalda telst vera brot á lögum og reglum sem um slíkt gilda á Íslandi.
3. gr.
Heiti laganna verður: Lög um landhelgi, aðlægt belti, efnahagslögsögu og landgrunn.4. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 1. júní 2017.